Skjaldborg

Skjaldborg verður haldin á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina, 26.-29. maí 2023

Umsóknarfrestur er 30. mars fyrir myndir tilbúnar til frumsýningar og verk í vinnslu.

Umsókarform er aðgengilegt í gegnum vef hátíðarinnar www.skjaldborg.is.

Þær íslensku heimildarmyndir sem frumsýndar eru á hátíðinni keppa um verðlaunin Einarinn, áhorfendaverðlaun sem hafa verið veitt frá upphafi og dómnefndarverðlaunin Ljóskastarann. Vegleg verðlaun eru veitt í öllum flokkum frá diggum stuðningsaðilum hátíðarinnar, þar á meðal þjónusta að verðmæti 1 milljón frá Kukl og 500 þúsund frá Trickshot. 

Hægt er að sækja um í tveimur flokkum: frumsýning á heimildarmynd eða verk í vinnslu.

Vakin er athygli á því að hægt er að sækja um með myndir á eftirvinnslustigi með nýjustu útgáfu verksins auk lýsingar á því hvar verkið er statt og áætlun um verklok. 

Gjaldgeng til frumsýninga 2023 eru verk sem uppfylla eftirfarandi skilyrði: 

  • Heimildarmyndir sem ekki hafa verið sýndar opinberlega á Íslandi og munu ekki verða sýndar á Íslandi áður en Skjaldborg 2023 er lokið
  • Heimildarmyndir sem teljast íslensk framleiðsla
  • ATH. Hægt er að sækja um fyrir erlendar myndir sem fjalla um íslensk málefni en þær myndir eru ekki gjaldgengar í keppni.

Nánari upplýsingar má finna á:

www.filmfreeway.com/skjaldborg
www.skjaldborg.is
Facebook - Skjaldborg
Instagram - Skjaldborg