Peter Broderick með master class fyrirlestur

Peter Broderick mun halda „master class“ fyrirlestur um dreifingu kvikmynda í Bíó Paradís þann 12. júní næstkomandi. Fyrirlesturinn hefst klukkan 16:30 í sal 2. Aðgangur er ókeypis. 

Fyrirlesturinn ber heitið „Building a Personal Audience: What You Need to Know“ og mun Peter í honum m.a. fjalla um hvernig kvikmyndagerðarmenn ná árangri við að byggja upp persónulegan áhorfendahóp og fer Peter yfir aðferðir til þess. Með því að notast við dæmi frá Englandi, Ástralíu, Kanada og Bandaríkjunum mun Peter sýna hvernig bein samskipti við áhorfendur eru að styrkja sjálfstæða kvikmyndagerðarmenn í fagi sínu. Með því að sanka að sér fylgjendum kvikmynd eftir kvikmynd geta kvikmyndagerðarmenn aukið sjálfstæði sitt og um leið byggt upp sjálfbæran starfsferil í faginu.

Peter er forseti Paradigm Consulting, fyrirtækis sem hjálpar kvikmyndagerðarmönnum og  fyrirtækjum að þróa leiðir til að ná sem víðtækastri dreifingu, sem mestum fjölda áhorfenda og þ.a.l. að hámarka tekjur. Hann hefur haldið gífurlegan fjölda fyrirlestra víðsvegar um heiminn á síðustu árum, þar á meðal á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto (TIFF), Sundance kvikmyndahátíðinni, alþjóðlegu heimildamyndahátíðinni í Amsterdam (IDFA) og Nordisk Panorama.

Heimasíðu Peter Broderick má nálgast hér.