Framboð til formanns SÍK 2026
Aðalfundur SÍK Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda verður haldinn fimmtudaginn 18. júní
Auglýst var eftir framboði til formanns SÍK og bárust þrjú framboð. Hér að neðan eru þau framboð sem bárust ásamt kynningu sem barst með framboði :
Arnar Benjamín Kristjánsson
Ég útskrifaðist frá leikstjórn/framleiðslu deild Kvikmyndaskóla Íslands árið 2012 og hef síðan þá starfað við kvikmyndagerð. Ég er einnig með MA gráðu frá Met Film School í London og MMM gráðu í Markaðsfræðum frá Háskólanum á Bifröst. Ég hef framleitt verkefni af öllum stærðum og gerðum, leikið sjónvarpsefni, skemmtiefni, stuttmyndir, heimildamyndir og myndir í fullri lengd sem framleiðandi, meðframleiðandi eða executive framleiðandi. Ég framleiddi meðal annars kvikmyndina Villibráð árið 2023 og meðframleiddi sjónvarpsþættina Afturelding. Ég var fagstjóri framleiðslu hjá Kvikmyndaskóla Íslands 2024 - 2025. Ég starfaði sem framleiðandi og framkvæmdastjóri Zik Zak kvikmynda árin 2018 til 2021 og sem framleiðandi þar árin 2021 til 2023. Síðan 2023 hef ég starfað sem framleiðandi hjá Sagafilm og hef setið í stjórn SÍK frá árinu 2024.
Grímar Jónsson
Ég hóf störf hjá Zik Zak kvikmyndum árið 2006, en flutti síðan til Óslóar árið 2010 til að starfa sem verkefnastjóri leikins efnis (e. Project Manager for fiction) hjá Norræna kvikmynda- og Sjónvarpssjóðnum (Nordisk Film & TV Fund). Árið 2013 lét ég af störfum hjá sjóðnum til að snúa mér heilshugar að sjálfstæðri kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu og stofnaði Netop Films sama ár.
Árið 2024 tók ég höndum við Söru Nassim og við stofnuðum Sarimar Films. Hugmyndafræðin okkar er nokkuð einföld: Sameinuð stöndum við sterkari og þannig myndum við regnhlíf yfir fyrirtækin okkar og þau verkefni sem við vinnum að saman og hvort í sínu lagi ásamt því að byggja á reynslu okkar í þróun, fjármögnun og framleiðslu á kvikmynduðu efni.
Ég er meðlimur í Evrópsku kvikmyndaakademíunni (EFA) og hef verið á fullu að símennta mig innan geirans með þátttöku í fjölmörgum námskeiðum og sjálfur haldið fyrirlestra við ýmis tækifæri. Þá var ég formaður vinnuhóps um nýja Kvikmyndastefnu Íslands 2020-2030 og hef einnig verið í vinnuhóp vegna kvikmyndasamnings við tæknifólk á vegum SÍK.
Milla Ósk Magnúsdóttir Ég er rekstrarstjóri og yfirframleiðandi hjá framleiðslufyrirtækinu ACT4. Hjá ACT4 hef ég verið framleiðandi á leiknu sjónvarpsþáttaröðunum Reykjavik Fusion, Bless Bless, Blesi og Big Brother. Ég er einnig í sjálfstæðri framleiðslu á tveimur heimildarþáttarröðum. Þá vann ég áður við framleiðslu og dagskrárgerð, sem og á fréttastofu RÚV í 10 ár.
Ég hef jafnframt mikla reynslu úr stjórnmálum og stjórnsýslunni. Ég var aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráða og vann m.a. að Kvikmyndastefnu Íslands 2030 og undirbúningi hækkunar endurgreiðslu úr 25% í 35%. Þar kynntist ég vel hversu miklu máli það skiptir að eiga öflugt og traust samtal við stjórnvöld, og að eiga sæti við borðið þegar teknar eru ákvarðanir er varða framtíð atvinnugreinarinnar.
SÍK þarf áfram að vera sterkur málsvari greinarinnar, berjast fyrir auknu framlagi í Kvikmyndasjóð og verja endurgreiðslukerfið. Þá þarf einnig að hefja undirbúning að nýrri kvikmyndastefnu með félagsmönnum og stjórnvöldum. Það væri mér mikill heiður að fá að nýta reynslu mína, tengsl og þekkingu á framleiðslu og stjórnkerfinu til að gæta hagsmuna félagsmanna SÍK.

