Framboð til stjórnar SÍK 2026

Aðalfundur SÍK Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda verður haldinn fimmtudaginn 18. júní. 

Skráningahlekkur á aðalfund

Auglýst var eftir framboðuð til þriggja meðstjórnenda stjórnar SÍK. bárust þrjú framboð. Sjö framboð bárust í þessi sæti sem sjá má hér að neðan, ásamt innsendum kynningum á framboði:

 Anton Máni Svansson

Ég hef starfað sem framleiðandi í rúm 20 ár og rek í dag framleiðslufélagið STILL VIVID. Ég hef lagt áherslu á langtímasamstarf við kvikmyndahöfunda og uppbyggingu sterkra alþjóðlegra samstarfa. Myndir sem ég hef framleitt hafa m.a. verið frumsýndar í Cannes, Berlín og Feneyjum, hlotið yfir 230 alþjóðleg verðlaun, fjórar tilnefningar til verðlauna Norðurlandaráðs og fjórum sinnum verið framlag Íslands til Óskarsverðlauna.

Ég hef jafnframt áratugalanga reynslu af stjórnarstörfum: í stjórn FK 2009–2013, í stjórn ÍKSA að mestu frá 2010 (formaður frá 2023), í stjórn Stockfish 2021–2023, í Kvikmyndaráði frá 2023 og í stjórn SÍK frá 2020 (formaður frá 2022). Ég er meðlimur í ACE Producers Network og Evrópsku kvikmyndaakademíunni og hef tekið þátt í EFP Producers on the Move og vinnusmiðjum EAVE, EAVE+ og ACE.

Birgitta Björnsdóttir

Birgitta Björnsdóttir er fædd í Reykjavík í maí 1978, og eftir að hafa lokið BA gráðu í Ensku við HÍ þá fór hún í MA nám í kvikmyndagerð við The London Film School, sem hún kláraði 2009.

Birgitta stofnaði fyrirtækið Vintage Pictures árið 2011, sem hefur framleitt verkefni eins og Svanurinn, Agnes Joy og Svar við bréfi Helgu. Árið 2023 tók hún við sem framkvæmdarstjóri Zik Zak ehf. 

Innan Vintage Pictures og Zik Zak hefur hún framleitt heimildarmyndir, kvikmyndir,  stuttmyndir og leikið sjónvarpsefni.

Búi Baldvinsson

Ég hef starfað við kvikmyndagerð í meira en aldarfjórðung, mestmegnis á gólfinu, með fólkinu sem lætur hlutina gerast, ekki á bak við skrifborð.

Stofnaði Hero Productions og hef komið að yfir 700 verkefnum af öllum stærðum og gerðum: kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og alþjóðlegum auglýsingum sem tekin hafa verið upp hér á landi. Ég er ekki bara eigandi sem stýrir úr fjarlægð, heldur einn af fólkinu sem vinnur hörðum höndum við hlið tökuliðsins. Vinnubrögð mín byggja á heiðarleika, gagnsæi og þeirri trú að traust sé eina myntin sem heldur verðgildi sínu í þessum bransa. Þetta skiptir mig persónulega miklu máli vegna þess að íslenskur kvikmyndaiðnaður er stærri við gerum okkur grein fyrir. Erlend verkefni flytja ekki bara inn fjármagn, heldur skapa störf og sem fólkið okkar þarfnast.
Ég býð mig fram til stjórnar SÍK á ópólitískum forsendum. Mér finnst vanta rödd sem þekkir þjónustu við erlend verkefni frá grunni — ekki aðeins innlenda efnisgerð. Þá rödd vil ég færa að borðinu.

Ég er maður verka frekar en orða, með fæturna á gólfinu og augun á heildarhagsmunum greinarinnar.

Hilmar Sigurðsson

Ég býð mig fram til áframhaldandi stjórnarsetu í SÍK. Ég hef setið meira og minna í stjórn síðan 2008 og var formaður 2012-2016. Ég hef verið gjaldkeri SÍK frá 2017. Ég tel að að sé nauðsynlegt að tryggja að sagan, vitneskja og þekking sé til staðar í stjórn og tel að reynsla mín nýtist vel í áframhaldandi störf í þágu kvikmyndaframleiðenda.

Ég á að baki 25 ára reynslu sem kvikmyndaframleiðandi, lengst af við framleiðslu teiknimynda en einnig sem framkvæmdastjóri og framleiðandi Sagafilm 2017-2023 í alls kyns kvikmyndaframleiðslu, þar með talið leikið sjónvarpsefni, kvikmyndir, heimildamyndir, stuttmyndir og annað dagskrárefni. Ég hef líka gengt fjölda trúnaðarstarfa fyrir kvikmyndagreinina, m.a. sem formaður ÍKSA til fjölda ára, setu og formennsku í fulltrúaráði IHM og sem stjórnarformaður Heimils kvikmyndanna ses síðan 2012.

Hrönn Kristinsdóttir

Í tæp þrjátíu ár hef ég verið hluti af íslenskri kvikmyndagerð, ég hef framleitt fjölda kvik-og heimildamynda, er mjög vel að mér í evrópskri samframleiðslu auk þess sem ég hef á síðustu árum unnið náið með bandarískum fyrirtækjum á borð við A24. 

Ég sat í stjórn SÍK á árunum 2007-2012 og gengdi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir samtökin og tók svo aftur sæti í stjórn 2024. Eftir öll þessi ár í bransanum og í hagsmunagæslu fyrir hann leyfi ég mér að segja að ég þekki vel til í íslenskri kvikmynda-og sjónvarpspólitík og tel mig vel til þess fallna að sitja áfram í stjórn SÍK og halda áfram í þeirri baráttu sem nú stendur fyrir dyrum. 
Áherslur mínar eru skýrar; 
• Hækka heildarfjárframlag til KMÍ í 2.5 milljarð 
• Setja nægilegt fjármagn í hinn nýja en tóma sjónvarpssjóð 
• Skýra og einfalda alla umsýslu endurgreiðslukerfisins

Jafnfram þarf að styrkja samtal greinarinnar við KMÍ, stjórnvöld og sjónvarpsstöðvarnar og þrýsta á um að fjármagn verði sett í að fylgja eftir Kvikmyndastefnunni þannig að greinin geti vaxið og dafnað á öruggum og eðlilegum forsendum.

Ég hef haft ánægju af störfum innan stjórnar og tel mikilvægt að ákveðin samfella náist í okkar hagsmunabaráttu með áframhaldandi setu minni í stjórn.

Skarphéðinn Guðmundsson

Skarphéðinn Guðnundsson er framkvæmdastjóri Sagafilm. Hann tók við starfinu í maí árið 2025 eftir fjölbreyttan feril í íslenskum fjölmiðlum og afþreyingariðnaði.

Áður gegndi hann stöðu dagskrárstjóra sjónvarps hjá RÚV, þar sem hann leiddi þróun, framleiðslu og meðframleiðslu fjölda leikinna þáttaraða, heimildamynda og annarrar framleiðslu sjónvarpsefnis í um 12 ára skeið. Þar áður var hann dagskrárstjóri Stöðvar 2 og hefur einnig starfað sem blaðamaður og menningargagnrýnandi.

Skarphéðinn hefur setið í stjórn Norræna sjóðsins auk þess að hafa tekið mikinn þátt og verið leiðandi í starfi Nordvision, samtökum Norrænna ríkismiðla og kom þar meðal annars að stofnun og útfærsu á N12, Börn 15 og New 8 samstarfanna.  Skarphéðinn hefur komið að þróun, fjármögnun og framleiðslu fjölmargra innlendra og alþjóðlegra verkefna og býr yfir víðtækri reynslu af samstarfi við norræna og alþjóðlega miðla, streymisveitur og framleiðendur.

Sunna Guðnadóttir

Sunna Guðnadóttir er kvikmyndaframleiðandi og framkvæmdastjóri Bjartsýn Films.  Hún er með BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Áður en Sunna hóf störf við framleiðslu fyrir 8 árum starfaði hún meira en áratug innan skapandi greina sem. Þar á undan starfaði hún mörg ár að markaðsmálum og fjármögnun fyrir frumkvöðlafyrirtæki og stofnaði meðal annars Icelandic Cinema Online (ICO), fyrstu íslensku streymisveituna sem helguð var íslenskum kvikmyndum.

Sunna hóf feril sinn í framleiðslu kvikmynda hjá Join Motion Picture eftir að hafa lokið námi í framleiðslu hjá New York Film Academy í Los Angeles. Með Join Motion Picture kom Sunna að framleiðslu kvikmyndarinnar Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason og var hún samframleiðandi að Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson.  Árið 2024 þreytti hún frumraun sína sem aðalframleiðandi með Natatorium sem var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Rotterdam (International Film Festival Rotterdam), og  þar á eftir í Norður-Ameríku á SXSW. Sunna hefur lokið ýmsum virtum erlendum vinnustofum fyrir framleiðendur, þar á meðal Filling the Gap, EAVE Producers Workshop og var valin sem Producer on the Move af European Film Promotion á þessu ári. Þá hefur Sunna kennt námskeið í kvikmyndaframleiðslu við Kvikmyndaskóla Íslands og við kvikmyndadeild Listaháskóla Íslands.