IHM úthlutun vegna 2012

SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda – auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði SÍK.

Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga sjálfstæðir kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndir sem sýndar hafa verið í sjónvarpi á árinu 2012.

 Aðeins rétt útfylltar umsóknir verða afgreiddar.

SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda.
c/o Samtök iðnaðarins
Borgartúni 35
105 Reykjavík

eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Umsóknarfrestur fyrir greiðslur úr IHM sjóði SÍK er til 30. nóvember næstkomandi. Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma.

Greiðslur þessar eru bætur til kvikmyndaframleiðenda fyrir upptökur á myndum þeirra, þegar þær eru sýndar í sjónvarpi á Íslandi. Sjá nánar á vefsíðu IHM.

Umsóknareyðublað er að finna hér á síðunni.

Vinsamlegast athugið að það er mikilvægt að fylla umsóknareyðublaðið út með öllum þeim upplýsingum sem beðið er um til að tefja ekki fyrir úrvinnslu gagna.