Aðalfundur SÍK 2015

Boðað er til aðalfundar SÍK 2015 sem haldinn verður þann 28. maí kl. 17:00 í Kviku, Borgartúni 35. Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum SÍK. Aðildarfélögum er bent á að í ár verður kosið um 3 stjórnarmenn – 2 meðstjórnendur og einn varamann. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram eru beðnir að hafa samband við formann.