(+354) 591 0100

Símanúmer

sik@si.is

Netfang

Fréttir

Skjaldborg 2026 - hátíð íslenskra heimildarmynda

Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin á Patreksfirði helgina 22.-25. nk. Á hátíðinni verða kynntar fimm íslenskar heimildastuttmyndir. 

Heiðursgestadagskrá hátíðarinnar samanstendur af kvikmyndagerðafólki frá Grænlandi, Færeyjum og Sápmi-héröðum í norður Skandinaviú en þemastef í þeirri dagskrá er hugtakið frásagnarfullveldi (e. Narrative Sovereignty)

Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á heimasíðu Skjaldborgar

Stockfish - kvikmynda- og bransa

Stockfish kvikmynda- og bransahátíðin stendur nú yfir dagana 19. - 29. mars.

Sérstök athygli er vakin á Bransadögum hátíðarinnar laugardaginn 28. mars í Norræna húsinu. 
Hátíðin hefst kl. 13:00 og er aðgangur ókeypis. 
Félagsmenn SÍK eru hvattir til að mæta

Dagskrá Bransadaga: 

13.00 - Pallborðsumræður með formönnum fagfélaganna. Umræðuefni: Staðan í íslenskri kvikmyndagerð, umræðum stýrir Wendy Mitchell. Boðið er upp á súpu á meðan umræðum stendur

14:00 - Pallborðumræður um N-Atlandshafssamstarf í kvikmyndagerð, meðal annars með forstöðumönnum kvikmyndamiðstöðva á Íslandi og á Grænlandi

15.00 - Hlé

15.30 - N-Norræn verk í vinnslu, nánar um verk í vinnslu hér

Þá er vert að hvetja félagsmenn til að fjölmenna á lokahóf og verðlaunaafhendingu hátíðarinnar sem verður haldin á Regnbogabar í Bíó Paradís, laugardaginn 28. mars kl. 21:00

Allt um Stockfish má finna á vef hátíðarinnar

 

Aðalfundur SÍK

Aðalfundur SÍK mun fara fram þriðjudaginn 24. júní kl. 16.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. 

Dagskrá aðalfundar verður samkvæmt lögum SÍK. Athygli er vakin á að gerðar eru tillögur til breytinga á lögum félagsins. Lagabreytingatillögur má finna á innri vef SÍK undir fundargögn aðalfundar, ásamt öðrum gögnum sem lögð verða fyrir fundinn.  
Auglýst er eftir framboðum til þriggja meðstjórnenda. Framboð berist á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Fundarsetning.
  2. Skýrsla stjórnar.
  3. Gagnsæisskýrsla sbr. gr. 4.4. laga SÍK.
  4. Framlagning endurskoðaðra reikninga.
  5. Lagabreytingar. 
  6. Laun stjórnar.
  7. Stjórnarkjör.
  8. Kjör endurskoðenda.
  9. Félagsgjöld ákvörðuð.
  10. Önnur mál.

Skráning á aðalfundinnn er að finna hér

 

 

IHM úthlutun vegna ársins 2024

SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda – auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði SÍK.

Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga allir sjálfstæðir kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndaverk sem sýnd hafa verið í sjónvarpi og á íslenskum streymisveitum á árinu 2024. Aðeins rétt út fylltar umsóknir verða afgreiddar. Vinsamlegast sendið umsóknir á:

SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda
Borgartúni 35
105 Reykjavík

eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Engar aðrar leiðir umsókna verða teknar gildar

Umsóknarfrestur fyrir greiðslur úr IHM sjóði SÍK vegna 2024 er til 30. júní næstkomandi. 

Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma.

Greiðslur þessar eru bætur til kvikmyndaframleiðenda fyrir eintakagerð til einkanota á myndum þeirra, þegar þær eru sýndar í sjónvarpi á Íslandi. Reglur um úthlutun eru aðgengilegar hér.

Úhlutunarreglur IHM 2024

Umsóknareyðublað er hér:

Umsóknareyðublað er að finna undir hnappinum Umsóknareyðublað, hér til hægri  

Vinsamlegast athugið að það er mikilvægt að fylla umsóknareyðublaðið í samræmi við leiðbeiningar á fyrsta flipa og öðrum þeim upplýsingum sem beðið er um, til að tefja ekki fyrir úrvinnslu gagna. Vinsamlegast setjið lengd verka sem mínútur, ekki tímakóða format.

Til úthlutunar fyrir árið 2024 eru samtals 27.270.000 kr. Þar sem ágreiningur er milli aðila um svokallaðar kapaltekjur hefur þeim ekki verið úthlutað til aðildarfélaga IHM, en umsóknir fyrir þetta ár verða grundvöllur úthlutunar þeirra tekna fyrir árið 2024, þegar þær berast.

 

Skjáauglýsingar hafa verið birtar á RÚV auk auglýsingar á Klapptré og Facebook síðu SÍK.

Kvikmynda- og bransahátíðin STOCKFISH 2025

Stockfish kvikmynda- og bransahátíðin verður haldin dagana 3.-13. apríl. Heiðursgestur hátíðarinnar að þessu sinni er Floria Sigismondi, ítalsk-kanadísk kvikmyndaleikstýra og myndlistarkona. Floria er vel þekkt fyrir einstakan stíl og hefur leikstýrt kvikmyndum á borð við The Runaways og The Turning. Að auki hefur hún gert mörg eftirminnileg tónlistarmyndbönd fyrir listamenn á borð við David Bowie, Rihanna og Björk.

Í ár verður ókeypis aðgangur inn á hátíðina. Gestum verður þó gefinn möguleiki á að greiða eftir tökum ef áhugi er á að styrkja hátíðina en miðaskráning fer fram á www.tix.is.  Þar þar sem hægt er að velja miða frá 0 kr. og upp í þá upphæð sem gestir hafa tök og vilja til að borga.

Opnunarmynd hátíðarinnar, og jafnframt Íslandsfrumsýning, er Verðurskeytin sem er leikin heimildarmynd í leikstjórn Bergs Bernburg en dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vef Stockfich

Dagskrá Bransadaga hátíðarinnar hefur einnig verið kynnt en búast og má við enn fleiri viðburðum í dagsrkánna samkvæmt skipuleggjendum 

Hátíðin verður að mestu haldin í Bíó Paradís í samstarfi við helstu fagfélög kvikmyndaiðnaðarins á Ísland.

 

Vöxtur í kvikmyndagerð á Íslandi svakalegur

„Vöxturinn í kvikmyndagerð á Íslandi hefur verið svakalegur. Þessar tölur sýna okkur hvað kvikmyndagerðin er raunverulega orðin stór,“ segir Hilmar Sigurðsson, kvikmyndaframleiðandi og stjórnarmaður í Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK), í Morgunblaðinu. 

Í Morgunblaðinu kemur fram að SÍK hafi látið ráðgjafarfyrirtækið Reykjavík Economics gera úttekt á skattaáhrifum starfsgreinarinnar á Íslandi. Í skýrslu fyrirtækisins komi fram að árið 2023 greiddi íslensk kvikmyndagerð mun meira í beina skatta en hún þáði í fjárfestingu og styrki frá hinu opinbera. Þá segir að sem kunnugt sé hafi verið skiptar skoðanir á endurgreiðslum vegna kvikmyndagerðar hér á landi sem og framlögum í Kvikmyndasjóð.

Í skýrslunni segi að skattalegt framlag kvikmyndagreinarinnar hafi árið 2023 verið 7,4 milljarðar króna með virðisaukaskatti en styrkir til kvikmyndagerðar og kvikmyndanáms það ár hafi numið samtals 4,7 milljörðum. Greinin hafi með með öðrum orðum greitt 1,6 sinnum meira í beina skatta en hún þáði í fjárfestingu og styrki frá hinu opinbera. „Við skulum segja að þessi niðurstaða hafi komið mörgum á óvart. Þetta er hins vegar mjög jákvætt, við erum ánægð að fá þarna formlega staðfestingu á því sem við höfum haldið fram. Það að við greiðum 1,6 sinnum meira í beina skatta en kemur frá ríkinu í fjárfestingu og styrkjum er mjög merkilegt og þá er ekki einu sinni farið að ræða ruðningsáhrif eða önnur áhrif, til dæmis á ferðaþjónustu.“

Hægt er að nálgast skýrsluna hér